Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu óskar að ráða aðstoð í mötuneyti

Mötuneytið er mikilvægur samverustaður þar sem starfsfólk kemur saman, nýtur næringar og byggir upp jákvæðan og öflugan starfsanda. Við leggjum áherslu á hollan og fjölbreyttan mat sem unninn er frá grunni og höfðar til breiðs hóps starfsmanna. Við leitum að áreiðanlegum aðstoðarmanni sem vill vera virkur þátttakandi í góðu teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þátttaka í daglegum störfum í eldhúsi og/eða matsal 
  • Sér til þess að eldhús og matsalur séu ávallt snyrtileg og uppfylli hreinlætiskröfur 
  • Frágangur, þrif, uppvask og sorplosun 
  • Leysir matreiðslumann af vegna orlofs og fjarvista 
  • Umsjón með kaffiaðstöðu, þrifum og að allur útbúnaður sé til staðar 
  • Sinnir öðrum verkefnum að beiðni matreiðslumanns og sviðsstjóra 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af matseld fyrir hópa 
  • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum 
  • Frumkvæði og þjónustulund 
  • Stundvísi og áreiðanleiki 
  • Snyrtimennska 
Auglýsing birt17. mars 2026
Umsóknarfrestur6. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hlíðasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Snyrtimennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar