Sumarstörf á Selfossi
Eimskip á Suðurlandi leitar að þjónustulipru og ábyrgu sumarstarfsfólki í stöðu meiraprófsbílstjóra og í stöðu bílstjóra á sendibíl á starfsstöð félagsins á Selfossi. Vinnutími er kl.8-16 á virkum dögum, en möguleiki á yfirvinnu á álagspunktum þegar svo ber undir.
Sumarstarf – Meiraprófsbílstjóri á Selfossi
Eimskip á Suðurlandi leitar að þjónustuliprum og ábyrgum meiraprófsbílstjóra í sumarstarf á starfsstöð félagsins á Selfossi. Vinnutími er 8-16 á virkum dögum. Möguleiki á yfirvinnu/helgarvinnu á álagspunktum þegar svo ber undir.
Hjá Eimskip á Suðurlandi starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum til viðskiptavina á suðurlandi.
Hjá Eimskip á Suðurlandi er nýlegur floti flutningabíla sem er vel viðhaldið og allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Mikil áhersla er á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip.
Í boði er heitur matur í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi. Möguleiki gæti verið á hluta- eða afleysingastarfi eftir sumarið.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks þar sem markvisst er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun að jafnri stöðu óháð kyni og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Akstur flutningabíla, lestun og losun
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meirapróf (CE) er skilyrði
- Lyftararéttindi (J) er kostur
- ADR réttindi er kostur
- Góð íslenskukunnátta æskileg
- Geta til að vinna undir álagi
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvæðni
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Nánari upplýsingar veitir Stefán Magnússon, svæðisstjóri, [email protected] eða í síma 660 2515.
Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026
Hreint sakavottorð og 18 ára aldur er skilyrði fyrir ráðningu hjá Eimskip.
Sumarstarf – Bílstjóri á sendibíl á Selfossi
Eimskip á Suðurlandi leitar að þjónustuliprum og ábyrgum einstakling í sumarstarf við útkeyrslu á sendibíl á starfsstöð félagsins á Selfossi. Vinnutími er 8-16 á virkum dögum. Möguleiki á yfirvinnu/helgarvinnu á álagspunktum þegar svo ber undir.
Hjá Eimskip á Suðurlandi starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum til viðskiptavina á suðurlandi.
Hjá Eimskip á Suðurlandi er nýlegur floti flutningabíla sem er vel viðhaldið og allur aðbúnaður til fyrirmyndar. Mikil áhersla er á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip.
Í boði er heitur matur í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi. Möguleiki á hlutastarfi og/eða framtíðarráðningu eftir sumarið.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um. Eimskip leggur áherslu á jafnrétti, heilsu og vellíðan starfsfólks þar sem markvisst er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun að jafnri stöðu óháð kyni og leitast eftir því að hafa vinnuumhverfið sem öruggast og heilsusamlegast.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Útkeyrsla sendinga á afgreiðslustaði eða í heimkeyrslu
- Flokkun sendinga
- Lestun og losun
- Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Bílpróf
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Þjónustulund og góð samskiptahæfni

Íslenska
Enska