

Sumarstarfsmaður í búsetukjarna
VILTU VERA MEÐ Í AÐ SKAPA FÖTLUÐU FÓLKI TÆKIFÆRI TIL AÐ LIFA TIL FULLS?
Við í búsetukjarnanaum í Klapparhlíð í Mosfellsbæ leitum eftir öflugu starfsfólki til liðs við okkur í sumar
Við veitum íbúum einstaklingsmiða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni.
Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar sem og þjónustu- og einstaklingsáætlunum. Við leggjum okkur fram við að skapa góða liðsheild.
Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og samkvæmt stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum.
Auglýst er í 50 til 90% starfshlutfall og gengið er út frá því að starfsmenn geti tekið morgun, kvöld helgar og /eða næturvaktir.Gert er ráð fyir að starfmenn vinni aðra hverja helgi í mánuði
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.
Við veitum íbúum einstaklingsmiða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni.
Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
Þjónustulund og jákvæðni í starfi
Hæfni í mannlegum samskiptum
Framtakssemi og samviskusemi
Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
Aldursskilyði 20 ár
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Hreint sakavottorð
Íslenska










