Fangelsismálastofnun ríkisins
Fangelsismálastofnun ríkisins
Fangelsismálastofnun ríkisins

Sumarafleysing - Matráður í mötuneytið á Litla Hrauni

Fangelsismálastofnun óskar eftir að ráða í eina stöðu matráðs í mötuneyti fangelsisins Litla-Hraun.

Leitað er að einstaklingi með ástríðu fyrir góðum mat og þjónustulund.

Mötuneytið er bæði fyrir starfsfólk og skjólstæðinga á Litla-Hrauni og á Hólmsheiði.

Um er að ræða 80% starf sem unnið er í vaktavinnu.

Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sér um matseld og fylgir áherslum um hollustu, næringargildi og eldamennsku frá grunni.
  • Innkaup eftir þörfum í samráði við yfirmann mötuneytis.
  • Vinnur að umbótum í matseld og gæðum máltíða í samræmi við stefnu yfirmanns mötuneytis.
  • Aðstoð við gerð matseðla.
  • Eftirlit með að reglum um hollustuhætti sé fylgt.
  • Eftirlit með nýtingu matvæla og að koma í veg fyrir sóun.
  • Leysir af yfirmann mötuneytis í fjarveru hans.
  • Þátttaka í pökkun, afhendingu máltíða og sendingum til Hólmsheiðar.
  • Tekur þátt í eftirliti með skjólstæðingum í samráði við yfirmann mötuneytis og matráð.
  • Sinnir öðrum verkefnum mötuneytis samkvæmt fyrirmælum yfirmanns mötuneytis.
  • Akstur með máltíðir til Hólmsheiðar um helgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Nauðsynlegt að hafa einhverja menntun í matreiðslu eða góða reynslu úr atvinnueldhúsi.
  • Ökuréttindi. 

 Persónulegir eiginleikar:

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
  • Geta unnið sjálfstætt og eftir ákveðnum verklagsreglum og gæðakröfum.
  • Nákvæmni, hreinlæti og ábyrgð í störfum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Vilji til að tileinka sér ný vinnubrögð og taka þátt í umbótum í þjónustu og gæðum.
  • Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Litla Hraun lóð 2 217221, 820 Eyrarbakki
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Matreiðsluiðn
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar