
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Stuðningsfulltrúi í íbúðarkjarna í Grafarvogi
Laus staða stuðningsfulltrúa á íbúðarkjarna í Grafarvogi. Staðan er 60-80% og er um blandaðar vaktir að ræða. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Í íbúðarkjarnanum Vallengi 2 starfar þéttur, samheldinn og skemmtilegur starfsmannahópur sem tekur vel á móti nýju fólki.
Leitast er eftir jákvæðum og metnaðarfullum stuðningsfulltrúa til starfa.
Starfið er fjölbreytt þar sem leitast er við að mæta þörfum og óskum íbúa hverju sinni. Starf stuðningsfulltrúa byggir á stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.
Starfshlutfall er 60-80% með blönduðum vöktum, morgun-, kvöld- og helgarvöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
- Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
- Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá eftir þörfum hverju sinni.
- Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Viðkomandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í starfi.
- Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Bílpróf er kostur
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Vallengi 2, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (12)

Teymisstjóri á íbúðakjarna í Laugardalnum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Heimahjúkrun flytur í nýtt og glæsilegt húsnæði!
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri í íbúðakjarna Vallengi 2
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf stuðningsfulltrúa
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf á íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk í Árbænum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skemmtilegt sumarstarf!
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Spennandi starf stuðningsfulltrúa í nýjum íbúðakjarna Sólvallagötu 79
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Mannauðsráðgjafi í heimaþjónustu Austurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf í Liðsaukanum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Ert þú með framúrskarandi þjónustulund? Sumarstarf
Pant

Starf í sérkennslu
Ævintýraborg ið Eggertsgötu

Teymisstjóri á íbúðakjarna í Laugardalnum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Vogaskóli - stuðningsfulltrúi
Vogaskóli

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir
NPA miðstöðin

Frístundaheimili Árborgar óska eftir frístundaleiðbeinendum og stuðningsstarfsmönnum
Frístundaþjónusta í Árborg

Vilt þú vinna sem stuðningsfulltrúi? Vertu með í frábærum hóp!
Sveitarfélagið Ölfus

Aðstoðarkona óskast til starfa
Heiða slf

Óska eftir aðstoðarkonu í Vesturbæinn
NPA miðstöðin

Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk - Smárahvammur
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf í skammtímadvöl fyrir fötluð börn - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær