Fjarðabyggð
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð

Stuðningsaðili í frístundaheimili á Reyðarfirði

Leitast er eftir því að ráða stuðningsaðila í frístundaheimili á Reyðarfirði

Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.

Um er að ræða stöður í 55% hlutfalli og er vinnutími frá 12:30-16:30 alla virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Starfsmaður sinnir stuðning sem einstaklingur þarf á að halda og þeirra þörfum í frístundastarfi.
  • Leiðbeina einstakling í leik og starfi í vetrarfrístund.
  • Hjálpa einstakling við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
  • Aðstoða einstakling í kaffitímum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með börnum er æskileg
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Ábyrgð og stundvísi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
Auglýsing birt27. ágúst 2025
Umsóknarfrestur10. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar