Stúdentakjallarinn
Stúdentakjallarinn
Stúdentakjallarinn

Stúdentakjallarinn leitar að sumarstarfsmanni til að starfa í eldhúsi/á grilli

Vilt þú starfa á lifandi veitingastað, í hjarta háskólasamfélagsins?

Félagsstofnun stúdenta (FS) leitar að sumarstarfsmanni til starfa í eldhúsi Stúdentakjallarans. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á matargerð og vill taka þátt í að útbúa fjölbreyttan og góðan mat fyrir gesti staðarins.

Um er að ræða a.m.k. 70% starf með möguleika á áframhaldandi starfi í haust.

Stúdentakjallarinn er í eigu Félagsstofnunar stúdenta og nýtur starfsfólk FS ýmiss konar fríðinda. Þar má meðal annars nefna íþróttastyrk og afslátt í Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og í Hámu.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst

**

Would you like to work in a lively restaurant at the heart of the university community?

Félagsstofnun stúdenta (FS) is seeking a summer employee to join the kitchen team at Stúdentakjallarinn. We are looking for an individual with an interest in cooking who would like to help prepare a variety of high-quality meals for our guests.

This is at least a 70% position, with the possibility of continued employment in the autumn.

Stúdentakjallarinn is owned by Félagsstofnun stúdenta, and FS employees enjoy a range of benefits. These include a fitness subsidy and discounts at Bóksala stúdenta, Stúdentakjallarinn, and Háma.

It would be preferable if the applicant could start as soon as possible.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Undirbúningur, matseld og framreiðsla á máltíðum og öðrum réttum samkvæmt matseðli. 
  • Fylgja reglum heilbrigðiseftirlitsins um matvælaöryggi og hreinlæti og vinna samkvæmt HACCP gæðakerfi.
  • Tryggja að eldhús og vinnslurými séu ávallt hrein, snyrtileg og vel skipulögð.
  • Aðstoða við pantanir, móttöku og frágang á vörum.
  • Sinna nauðsynlegum þrifum á eldhúsi, tækjum og búnaði.
  • Taka þátt í öðrum tilfallandi verkefnum eftir þörfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi í eldhúsi eða við grilli er nauðsynleg
  • Þekking á matvælaöryggi, hreinlæti og HACCP verklagi
  • Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Nákvæmni og samviskusemi
  • Snyrtimennska
  • Góð samskiptahæfni
  • Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

Stúdentakjallarinn er í eigu Félagsstofnunar stúdenta og nýtur starfsfólk FS ýmiss konar fríðinda. Þar má meðal annars nefna íþróttastyrk og afslátt í Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og í Hámu.

Auglýsing birt30. apríl 2026
Umsóknarfrestur14. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Sæmundargata 4-10 4R, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EldhússtörfPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FramreiðslaPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar