

Matráður í leikskólanum Rjúpnahæð
Rjúpnahæð er sex deilda leikskóli í Salahverfinu, sem er í stöðugri þróun. Þar starfa um 35 starfsmenn með 106 börnum á aldrinum 1-6 ára. Í leikskólanum starfar faglegur og framúrskarandi starfsmannahópur sem vinnur saman að gera góðan leikskóla enn betri.
Hugmyndafræði leikskólans byggir á hugsmíðahyggju og meginmarkmið okkar er sjálfræði með lýðræði að leiðarljósi. Einkunnarorð skólans eru sjálfræði - gleði - virðing - lýðræði.
Við óskum eftir metnaðarfullum og drífandi matráði sem hefur áhuga á að skapa bragðgóðan og næringarríkan mat handa mikilvægustu þegnum landsins - börnunum okkar.
Við leggjum mikla áherslu á að allur matur sé búinn til frá grunni á staðnum og nýbakað heimagert brauð. Einnig er mikilvægt að viðkomandi geti útbúið og eldað mat að öryggi fyrir börn með ýmisskonar frávik í fæðu.
Við bjóðum upp á skemmtilegt og skapandi starfsumhverfi, stuðning í starfi, góðan og fjölskylduvænan vinnutíma og eitt besta samstarfsfólk sem völ er á.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst eða fyrr.
- Framleiðir holla og næringarríka fæðu fyrir börnin
- Framleiðir mat fyrir börn með fæðuofnæmi/óþol
- Gerð matseðla og innkaup
- Vinnur samkvæmt því skipulagi sem leikskólastjóri ákveður
- Hefur yfirumsjón með störfum aðstoðarmatráðs
- Mikilvægt er að eiga gott samstarf við börn og aðra starfsmenn leikskólans
- Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús, þvottahús sem og kaffistofu sem yfirmaður felur honum
- Matreiðslumaður
- Ábyrgur, stundvís, sveigjanlegur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti
- Góð íslenskukunnátta
- Þekking á framreiðslu og bakstri
- Sjálfstæði, skipulag og metnaður í vinnubrögðum
- Hreinlæti og snyrtimennska
- Þekking og meðvitund um næringargildi og hollustu matvæla
- Þekking á matargerð fyrir börn með bráðaofnæmi og óþol
- Frítt í sund í sundlaugum Kópavogsbæjar
- Styttri vinnuvika
- Frítt fæði
- Íþróttastyrkur
Íslenska










