
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Steypuhrærari í Þorlákshöfn
Steypustöðin á Selfossi leitar að sterkum og skipulögðum einstakling í steypuframleiðslu. Ef þú ert hörkuduglegur og óhræddur við að óhreinka hendurnar, þá gæti þetta mögulega verið rétta starfið fyrir þig. Starfið felst í framleiðslu og dreifingu á steypu.
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstakling inn í okkar góða teymi. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að takast á við nýjar og fjölbreyttar áskoranir í góðum hóp.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Steypuframleiðsla í samstarfi við yfirverkstjóra
- Samskipti við viðskiptavini
- Skipulagning útkeyrslu
- Afhending steypu í steypubíla
- Eftirlit með góðri umgengni og meðhöndlun tækja
- Vera vakandi yfir að vélbúnaður og tæki séu í lagi og tilkynna frávik yfirmanni
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Almenn tölvuþekking
- Eftirfylgni og nákvæmni í vinnubrögðum
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Jákvæð framkoma
- Íslensku- og/eða enskukunnátta skilyrði.
- Þekking og áhugi á steypuframleiðslu er kostur
Fríðindi í starfi
- Hádegismatur
- Fjölbreytt verkefni
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Námskeið og fræðsla
Auglýsing birt2. september 2026
Umsóknarfrestur13. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hrísmýri 8, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður á þjónustustöð Selfossi
Vegagerðin

Framtíðarstarf
M.Brothers ehf.

Technician in Manufacturing Team
Alvotech hf

Framtíðarstarf í vöruhúsi TDK Foil Iceland ehf, Akureyri
TDK Foil Iceland ehf

FJÖLHÆFUR STARFSMAÐUR ÓSKAST TIL MOLTU
Molta ehf.

Liðsfélagi í markaðs- og framleiðsludeild
Iðan fræðslusetur

CNC starfsmaður í frumgerðarsmíði / CNC Machinist
Embla Medical | Össur

Starfsmaður í veitingaeldhús
Ráðlagður Dagskammtur

Viðgerðarmaður / vörubílstjóri
Stéttafélagið ehf.

Meiraprófsbílstjóri með reynslu / CE driver with experience - Einingaverksmiðjan
Einingaverksmiðjan

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Starfsmaður á orlofssvæði á Suðurlandi
Fagfélögin