

Starfsmenn í tímavinnu – Lækur
Leitað er að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í tímavinnu á Læk, sem er athvarf fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið Lækjar er að draga úr félagslegri einangrun og auka lífsgæði. Í boði er spennandi og lærdómsríkt starf með fjölbreyttum verkefnum sem unnið er í tilfallandi tímavinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Virkja gesti á þeirra forsendum/fjölbreytt verkefni
- Móttaka gesta
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Áhugi á málaflokknum
- Reynsla af störfum með geðfötluðu fólki er æskileg
- Hugmyndarík/ur
- Sýna frumkvæði og jákvæðni í samskiptum og starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum, framtakssemi og samstarfsvilji
- Íslenskukunnátta
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð
Upplýsingar um starfið veitir Brynja Rut Vilhjálmsdóttir, sími: 664-5746 eða 585-5770, eða í gegnum tölvupóst: [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar (STH).
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2025.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.












































