

Starfsmaður í skammtímadvöl fyrir börn
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir starfsmanni í skammtímadvöl fyrir börn með langvarandi stuðningsþarfir. Helstu markmið þjónustunnar er að auka lífsgæði barna og ungmenna, þátttöku þeirra í samfélaginu og bæta líðan þeirra.
Leitað er að öflugum starfsmanni í vaktavinnu þar sem unnið er á kvöldin og um helgar.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
-
Faglegt starf með börnum og ungmennum með langvarandi stuðningsþarfir
-
Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta
-
Aðstoð og stuðningur við börn og ungmenni í daglegu lífi
-
Þroskaþjálfa- félagsliða- sjúkraliða eða önnur menntun sem nýtist í starfi
-
Þekking og reynsla af starfi með börnum með fatlanir er kostur
-
Sveigjanleiki og aðlögunarhæfni
-
Jákvæð og góð þjónustulund
-
Íslenskukunnátta skilyrði
-
20 ára aldurstakmark












