Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Sumarstörf á HSU - Sjúkraliðar á bráðamóttöku

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða sjúkraliða og sjúkraliðanema á Bráðamóttöku HSU Selfossi í sumarafleysingu.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Um er að ræða hjúkrun sjúklinga á bráðamóttöku HSU þar sem öll bráðatilvik koma inn. Sjúklingar tilheyra öllum aldurshópum og koma hvenær sem er sólarhringsins, sem gerir bráðamóttökuna að spennandi vinnustað með mikið af lærdómstækifærum.

  • Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.

  • Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.

  • Um er að ræða vaktavinnu.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sjúkraliðanám frá viðurkenndri menntastofnun eða staðfesting á framvindu náms

  • Starfsleyfi landlæknis

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum

  • Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf

  • Reynsla af vinnu á bráðamóttöku er kostur

Auglýsing birt15. maí 2025
Umsóknarfrestur27. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar