Bako Verslunartækni
Bako Verslunartækni

STARFSMAÐUR Í VÖRUHÚSI

STARFSMAÐUR Í VÖRUHÚSI – 100% STARF

Bako Verslunartækni leitar að áreiðanlegum og jákvæðum starfsmanni til að bætast í öflugt teymi okkar í vöruhúsi. Starfið hentar bæði konum og körlum sem hafa áhuga á fjölbreyttum og skýrt afmörkuðum vöruhúsverkefnum í góðu vinnuumhverfi.

Um Bako Verslunartækni

Bako Verslunartækni er traust og rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í lausnum fyrir verslanir, vöruhús, veitingastaði, hótel, bari og bakarí svo eitthvað sé nefnt. Við leggjum áherslu á fagmennsku, góða þjónustu og jákvætt starfsumhverfi þar sem starfsfólk er í lykilhlutverki.

Vinnutími og kjör

  • Vinnutími: kl. 9:00–17:00 mánudag - fimmtudags, föstudaga 9:00-16:00 . Lokað um helgar
  • Niðurgreiddur heitur hádegismatur fyrir starfsfólk

Helstu verkefni

  • Tiltekt og frágangur á vörum í pantanir
  • Afgreiðsla pantana til viðskiptavina
  • Móttaka, skráning og frágangur vara
  • Almenn vöruhússtörf og önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Jákvæðni, lipurð og þjónustulund
  • Stundvísi, snyrtimennska og góð umgengni
  • Góð tölvukunnátta; reynsla af BC og vöruhúsakerfum er mikill kostur
  • Frumkvæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
  • Umbótamiðuð hugsun og drifkraftur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

Ef þú ert ábyrgur, skipulagður og tilbúinn að taka þátt í öflugu teymi í góðu vinnuumhverfi, þá hvetjum við þig til að sækja um. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2026.

Auglýsing birt7. maí 2026
Umsóknarfrestur1. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dragháls 24
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar