

Starfsmaður á hjólagröfu
Malbikstöðin óskar eftir að ráða öflugan einstakling í fjölbreytt og krefjandi starf á hjólagröfu. Um fjölbreytt starf er að ræða þar sem viðkomandi verður hluti af samstilltu teymi sem sinnir hinum ýmsu verkefnum. Malbikstöðin býður upp á fyrsta flokks tækjakost og þjálfun sem nauðsynleg er til að sinna starfinu (English below).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjölbreytt vinna á hjólagröfu
- Ábyrgð á daglegu viðhaldi vinnuvéla
- Fylgja öllum öryggiskröfum og reglum. Starfið telst sérstaklega áhættusamt vegna mikillar nálægðar við umferð og vinnuvélar
Hæfniskröfur
- Almenn ökuréttindi
- Vinnuvélaréttindi
- Meiraprófsréttindi kostur
- Reynsla af akstri og notkun vinnuvéla
- Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
- Geta til að vinna undir álagi
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Vinnufatnaður
- Hádegismatur
Um Malbikstöðina
Malbikstöðin var stofnuð árið 2004. Félagið hefur vaxið og dafnað vel frá stofnun þess en á árinu 2020 var reist ný framleiðslustöð fyrir malbik með áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og endurvinnslu malbiks. Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 60 manns við hin ýmsu störf. Félagið rekur tvö verkstæði, rannsóknarstofu, malbikshópa, fræshópa, malbiksframleiðslu, gæða- og umhverfiseftirlit, flotastýringu og skrifstofu. Nánari upplýsingar um Malbikstöðina má sjá á heimasíðu félagsins www.malbikstodin.is
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.
-----------------------------------------------------------------
Wheel Excavator Operator
Malbikstöðin is seeking to hire a motivated individual for a varied and demanding position as a wheel excavator operator. This is a diverse role where the successful candidate will become part of a well-coordinated team working on a wide range of projects. Malbikstöðin provides first-class equipment and the necessary training to perform the job.
Main Tasks and Responsibilities
- Diverse work operating a wheel excavator
- Responsibility for the daily maintenance of machinery
- Comply with all safety requirements and regulations. The role is considered particularly high-risk due to close proximity to traffic and heavy machinery
Qualifications and Skills
- Valid general driver’s license
- Machinery operation license
- Heavy vehicle driver’s license is an advantage
- Experience in operating and handling machinery
- Ability to work independently and as part of a team
- Ability to work under pressure
Employee Benefits
- Fitness allowance
- Work clothing provided
- Lunch provided











