
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Starfsmaður á þjónustustöðinni í Garðabæ
Vegagerðin óskar eftir traustum starfsmanni til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustustöðinni í Garðabæ.
Unnið er á opnunartíma þjónustustöðvar en starfsmenn eru þar að auki á föstum vöktum frá október-apríl alla daga vikunnar, vegna eftirlits með færð og vetrarþjónustu.
Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn dagleg þjónusta og viðhald á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar.
- Eftirlit með færð á vegum og upplýsingagjöf um ástand vega.
- Vinna við uppsetningu og viðhald umferðarmerkja, vegvísa, stika og vegriða.
- Holuviðgerðir og hreinsun ristahliða og hreinsun vegsvæða.
- Ýmis önnur vinna á þjónustustöð.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn ökuréttindi skilyrði.
- Vinnuvélaréttindi æskileg.
- Meirapróf æskilegt.
- Góð öryggisvitund.
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp.
- Gott vald á íslensku.
- Almenn tölvukunnátta.
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Pípari óskast
Hitavirkni ehf

Vinna á dælubíl / Pump truck operator
Stíflutækni

Framleiðslustarf á Dalvík - vaktavinna / Production work in Dalvík - shift work
Sæplast Iceland ehf

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk ehf.

Verka- og vélamenn
Garðlist ehf

Starfsmaður í framleiðslu og merkingar
Signa ehf

Infrastructure Technician – Piping & Cooling Systems
Verne Global ehf

Customer Support Supervisor
Verne Global ehf

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu
Orka náttúrunnar

Reyndur pípari óskast til starfa
Aðallagnir

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni
Þjónustumiðstöð Kópavogs

Handlaginn Verkamaður / Workshop fabrication
Glerverk