
Vegagerðin
Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Starfsmaður á þjónustustöðinni á Patreksfirði
Vegagerðin óskar eftir áreiðanlegum starfsmanni til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustustöðinni á Patreksfirði.
Unnið er á opnunartíma þjónustustöðvar en starfsfólk sinnir jafnframt bakvöktum utan dagvinnutíma frá október-apríl alla daga vikunnar, vegna eftirlits með færð og vetrarþjónustu.
Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn dagleg þjónusta og viðhald á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar
- Eftirlit með færð á vegum og upplýsingagjöf um ástand vega
- Vinna við uppsetningu og viðhald umferðarmerkja, vegvísa, stika og vegriða
- Holuviðgerðir og hreinsun ristahliða
- Ýmis önnur vinna á þjónustustöð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn ökuréttindi skilyrði
- Vinnuvélaréttindi æskileg
- Meirapróf æskilegt
- Góð öryggisvitund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
- Gott vald á íslensku
- Almenn tölvukunnátta
Auglýsing birt3. júní 2026
Umsóknarfrestur22. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Mikladalsvegur 9, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Starfsfólk á þjónustustöð á Akureyri
Vegagerðin

Plastsuðumaður/Plastic Welder/Spawacz tworzyw sztucznych/Zavarivač plastike
VikNordik ehf.

Rafvirki
Blikkás ehf

Tæknimaður óskast til starfa hjá Freyju
Freyja

Vélvirki, vélstjóri
Stálorka

Vinna í framleiðslu / Production job
Freyja

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Sorptunnuþrif ehf. - þrif - fullt starf
Umsókn um almennt starf Sorptunnuþrif

Starfsmaður á þjónustustöð á Sauðárkróki
Vegagerðin

Starfsmaður í frysti og kæligeymslu Aðfanga
Aðföng

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Iðmenntaður einstaklingur í eignaumsýslu
Eir hjúkrunarheimili