
Starfsfólk óskast í vaktavinnu hjá Hrafnkötlu
Hrafnkatla leitar að ábyrgu og metnaðarfullu starfsfólki til að starfa í vaktavinnu.
Unnið er á:
- 6, 8 eða 12 tíma dagvöktum
- 12 tíma næturvöktum
Möguleiki er á að taka eingöngu dagvaktir.
Í boði eru bæði fullt starf og hlutastarf.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni þar sem unnið er með börnum og ungmennum með fjölþættan vanda, þar á meðal hegðunar-, tilfinninga- og þroskavanda, auk fötlunar í sumum tilvikum. Einnig felst í starfinu vinna með foreldrum og fjölskyldum þar sem lögð er áhersla á stuðning, leiðsögn og uppeldishæfni. Unnið er með viðkvæm og oft flókin mál sem krefjast fagmennsku, góðrar samskiptahæfni og hæfni til að byggja upp traust sambönd. Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt sem og í teymi og sýnt frumkvæði í starfi. Reynsla af vinnu með börnum, ungmennum, fjölskyldum eða einstaklingum með sérþarfir er kostur.
Um Hrafnkötlu
Hrafnkatla býður upp á fjölbreytta og sérsniðna þjónustu fyrir börn og ungmenni. Lögð er rík áhersla á öryggi, fagmennsku, stuðning og vellíðan í öllu starfi.
Starfsemin felur m.a. í sér:
Búsetuúrræði
Einstaklingsbundið úrræði fyrir börn og ungmenni sem þurfa stöðugt, öruggt og faglegt umhverfi.
Unnið er með daglegt líf, félagsfærni og sjálfstæði með áherslu á traust og stöðugleika.
Fjölskylduheimili (12–20 ára)
Stuðningsríkt heimili fyrir allt að fjögur ungmenni.
Unnið er út frá tengslamyndandi nálgun og gagnreyndum aðferðum með áherslu á skóla, vinnu og félagslíf.
Bráðavistun
Þjónusta allan sólarhringinn, allt árið, fyrir ungmenni í bráðri þörf á öryggi og skjóli.
Hvíldar- og sumardvöl
Tímabundin dvöl fyrir börn og fjölskyldur, t.d. yfir helgar eða vikur, með áherslu á hvíld og stuðning.
Einstaklingsstuðningur
Sérsniðinn stuðningur sem miðar að því að efla sjálfstraust, félagsfærni og þátttöku í samfélaginu.
Óboðað eftirlit og eftirlit með umgengni
Unnið að því að tryggja öryggi barns og styðja við jákvæð og örugg samskipti.
Uppeldisráðgjöf og foreldrafræðsla
Við veitum foreldrum faglega ráðgjöf og fræðslu sem miðar að því að efla foreldrafærni, styrkja samskipti og skapa stöðugt og uppbyggilegt heimilisumhverfi.
Stuðnings- og ráðgjafaþjónusta
Leiðsögn til barna, ungmenna og fjölskyldna í daglegu lífi, uppeldi og samskiptum í samstarfi við aðra fagaðila.
Greiningar- og leiðbeiningarvistun
Stuðningur við foreldra og börn þar sem þörf er á auknu eftirliti, leiðsögn og uppbyggingu í öruggu umhverfi.
Við bjóðum:
- Fjölbreytt og krefjandi starf í faglegu umhverfi
- Sterkt teymi og stuðning í starfi
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á líf barna og ungmenna
- Þjálfun og handleiðslu
- Veita ungmennum stuðning, umönnun og uppeldi í daglegu lífi
- Stuðla að jákvæðri hegðun, stöðugleika og fyrirsjáanlegri daglegri rútínu
- Skapa öruggt, hlýlegt og uppbyggilegt umhverfi
- Annast almenn heimilisstörf, þar á meðal innkaup, akstur og almennan rekstur heimilis
- Styðja ungmenni í skóla, vinnu og félagslífi eftir þörfum
- Viðhalda faglegum samskiptum og samstarfi við barnavernd, fjölskyldur og aðra fagaðila
- 21 árs eða eldri
- Menntun sem nýtist í starfi æskileg (t.d. á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda)
- Reynsla af vinnu með börnum og/eða ungmennum er kostur
- Reynsla eða áhugi á að vinna með fötluðum einstaklingum er kostur
- Góð samskiptahæfni og hæfni til að mynda traust tengsl
- Frumkvæði, ábyrgð og jákvætt viðhorf til starfa
- Sveigjanleiki og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf
Íslenska










