Sassy
Sassy
Sassy

Starfsfólk í verslun, hlutastarf

Við hjá Sassy leggjum okkur fram við að veita persónulega og framúrskarandi þjónustu og leitum nú að jákvæðum og þjónustuliprum einstaklingi í hlutastarf. Við leggjum ríka áherslu á góð mannleg samskipti, vönduð vinnubrögð og hlýlega upplifun fyrir hvern og einn viðskiptavin.

Um starfið

Starfið felur meðal annars í sér að taka á móti viðskiptavinum í verslun, veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf, taka saman netpantanir, taka á móti og ganga frá vörusendingum ásamt því að sinna almennum verkefnum í verslun. Einnig getur komið til greina að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum tengdum Sassy, bæði í verslun og utan hennar, svo sem vinnuferðum út á land, mörkuðum, pop-up viðburðum og öðru skemmtilegu.

Við veitum að sjálfsögðu alla nauðsynlega þjálfun og fræðslu.

Við leitum að starfsfólki sem getur unnið síðdegis á virkum dögum og 2–4 laugardaga í mánuði frá kl. 11:00–15:00. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Vinnutími:

  • 2–3 síðdegi á virkum dögum í viku
  • 2–4 laugardagar í mánuði, kl. 11:00–15:00

Æskilegt er að umsækjandi sé 23 ára eða eldri.

Við hvetjum áhugasama til að senda inn umsókn sem fyrst, þar sem unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita framúrskarandi þjónustu
  • Aðstoða viðskiptavini í verslun
  • Taka saman netpantanir
  • Taka upp sendingar
  • Halda verslun snyrtilegri
  • Almenn þrif og önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunnskólamenntun
  • Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
  • Jákvætt viðmót og stundvísi
  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
Auglýsing birt24. júlí 2026
Umsóknarfrestur14. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar