Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Apótekarinn Selhellu - sala og þjónusta, framtíðarstarf

Við leitum að skipulögðum og sjálfstæðum starfsmanni með ríka og góða þjónustulund í starf við sölu og þjónustu í apótekinu okkar að Selhellu í Hafnarfirði. Starfið felst í almennri ráðgjöf og sölu á lausasölulyfjum og öðrum vörum verslunarinnar.

Starfið er hlutastarf með vinnutíma 12-18 alla virka daga nema mánudaga 10-18.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Almenn þjónusta og afgreiðslustörf
  • Afgreiðsla lausasölulyfja
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Ábyrgð, nákvæmni og fagmennska
  • Reynsla af starfi í apóteki er kostur
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta skilyrði
  • Mikil þjónustulund og jákvæðni

Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Hvað býður Apótekarinn?

  • Frábær samvinna innan keðju apóteka
  • Samkeppnishæf laun
  • Góð kjör fyrir starfsmenn á vörum Apótekarans og Augastað Gleraugnaverslana
  • Öflugt starfsmannafélag
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Skóstyrkur

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum [email protected] og Eygló Kristinsdóttir, Verkefnastjóri á mannauðssviði [email protected]

Um Lyf og heilsu:

Lyf og heilsa reka í dag 27 lyfjaverslanir undir merkjum Apótekarans. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.

Auglýsing birt22. júlí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Selhella 13, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar