

Apótekarinn Granda - sala og þjónusta, framtíðarstarf
Sala og þjónusta í apóteki - Grandi
Apótekarinn leitar að starfsmanni í framtíðarstarf í apótek félagsins á Granda.
Um er að ræða fasta vaktarúllu með vinnutíma kl 10-18/12-19/16-22 og ein helgi í mánuði.
Hlutverk og ábyrgð:
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
- Almenn þjónusta og afgreiðslustörf
- Afhending lyfja gegn lyfseðli
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Hæfniskröfur:
- Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
- Reynsla af starfi í apóteki er kostur
- Lyfjatæknimenntun mikill kostur
- þekking á snyrtivörum er kostur
- Framúrskarandi íslenskukunnátta skilyrði
- Mikil þjónustulund og jákvæðni
- Lágmarksaldur er 20 ára
Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hvað býður Apótekarinn?
- Frábær samvinna innan keðju apóteka
- Samkeppnishæf laun
- Góð kjör fyrir starfsmenn á vörum Apótekarans og Augastað Gleraugnaverslana
- Öflugt starfsmannafélag
- Líkamsræktarstyrkur
- Skóstyrkur
Nánari upplýsingar um starfið veita Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum [email protected] og Eygló Kristinsdóttir, Verkefnastjóri á mannauðssviði [email protected]
Um Lyf og heilsu:
Lyf og heilsa reka í dag 27 lyfjaverslanir undir merkjum Apótekarans. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.
Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.
Íslenska










