Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Apótekarinn - afgreiðsluflakkari

Apótekarinn - afgreiðsluflakkari

Við leitum að skipulögðum og sjálfstæðum starfsmanni með ríka og góða þjónustulund í starf við sölu og þjónustu í apótekum okkar á höfuðborgarsvæðinu. Starfið felst í almennri ráðgjöf og sölu á lausasölulyfjum og öðrum vörum verslunarinnar.

Starfið er 100% starf með föstum vöktum frá kl 9/10-18 alla virka daga, þar sem viðkomandi hefur eina ákveðna starfsstöð en sinnir afleysingum í öðrum apótekum félagsins í forföllum.

Helstu verkefni?

  • Afgreiðsla lausasölulyfja
  • Afgreiðsla á bætiefnum og vítamínum og öðrum vörum apóteksins
  • Aðstoð við lyfjaafgreiðslu, skráningu og samskipti við viðskiptavini

Hæfniskröfur:

  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Ábyrgð, nákvæmni og fagmennska
  • Áhugi á að starfa í apóteki við heilbrigðisþjónustu
  • Góð íslenskukunnátta
  • Reynsla af störfum úr apóteki er kostur

Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða - greiddur er bifreiðastyrkur.

Hvað býður Apótekarinn?

  • Frábær samvinna innan keðju apóteka
  • Samkeppnishæf laun
  • Góð kjör fyrir starfsmenn á vörum Apótekarans og Augastað Gleraugnaverslana
  • Öflugt starfsmannafélag
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Skóstyrkur

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum [email protected] og Eygló Kristinsdóttir, Verkefnastjóri á mannauðssviði [email protected]

Um Lyf og heilsu:

Lyf og heilsa reka í dag 27 lyfjaverslanir undir merkjum Apótekarans. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.

Auglýsing birt24. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar