Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Apótekarinn Glerártorgi - Sumarstarf

Apótekarinn - Sala og þjónusta, sumarstarf

Okkur vantar starfsmann í apótekarann á Glerártorg í sumarstarf.

Við leitum að skipulögðum og sjálfstæðum starfsmanni með ríka og góða þjónustulund í starf við sölu og þjónustu í apótekarann á Glerártorgi. Starfið felst í almennri ráðgjöf og sölu á lausasölulyfjum og öðrum vörum verslunarinnar.

Um sumarstarf er að ræða með möguleika á hlutastarfi í vetur.

Vinnutími er kl 10/12-18 alla virka daga. Viðkomandi þarf að geta unnið um helgar samhliða starfinu.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Almenn þjónusta og afgreiðslustörf
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi í apóteki er kostur
  • Þekking á snyrtivörum er kostur
  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
  • Viðkomandi þarf að geta unnið í allt sumar
  • Lágmarksaldur er 20 ára

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eygló Kristinsdóttir, Verkefnastjóri á mannauðssviði, [email protected] og Sigrún Erlendsdóttir, sérfræðingur á mannauðssviði, [email protected]

Um Apótekarann:

Apótekarinn er hluti af Lyf og heilsu en félagið rekur í dag 27 lyfjaverslanir undir merkjum Apótekarans. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.

Auglýsing birt22. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Gleráreyrar 1, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar