Apótekarinn
Apótekarinn
Apótekarinn

Apótekarinn Firði - Sala og þjónusta

Okkur vantar starfsmann í framtíðarstarf í Apótekarann Firði.

Við leitum að skipulögðum og sjálfstæðum starfsmanni með ríka og góða þjónustulund í starf við sölu og þjónustu í apótekið okkar í Firði. Starfið felst í almennri ráðgjöf og sölu á lausasölum lyfjum og öðrum vörum verslunarinnar.

Hlutverk og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum
  • Almenn þjónusta og afgreiðslustörf
  • Afhending lyfja gegn lyfseðli

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af starfi í apóteki er kostur
  • Rík þjónustulund og jákvæðni
  • Framúrskarandi íslenskukunnátta er skilyrði
  • Lágmarksaldur er 20 ára
  • Reynsla af störfum í apóteki er kostur

Vinnutími er frá 10-18 alla virka daga.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ekki seinna en um miðjan júní.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristín Garðarsdóttir, Lyfsöluleyfishafi, á netfangið [email protected] og Eygló Kristinsdóttir, Verkefnastjóri á mannauðssviði, [email protected]

Um Apótekarann:

Apótekarinn er hluti af Lyf og heilsu en félagið rekur í dag 27 lyfjaverslanir undir merkjunum Apótekarans. Félagið rekur einnig 4 lyfjaútibú. Auk lyfjaverslana rekur félagið tvær gleraugnaverslanir undir merkinu Augastaður, SA Lyfjaskömmtun og Gamla apótekið, sem sérhæfir sig í framleiðslu á kremum, áburðum og olíum. Alls starfa um 300 manns hjá félaginu í um 175 stöðugildum.

Félagið leggur áherslu á heilsu og heilbrigði og er markmið þess að auka lífsgæði viðskiptavina sinna, veita persónulega, örugga og faglega þjónustu með breiðu úrvali lyfja, heilsutengdra vara og snyrtivara. Stefnt er að því að styðja við þessar áherslur og markmið, enda eru lyfjaverslanir lykil innviðir í hverju samfélagi.Félagið er á spennandi tímamótum með nýju eignarhaldi og munu leyfishafar taka virkan þátt í mótun félagsins til framtíðar.

Auglýsing birt11. maí 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Fjarðargata 13-15, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar