Húsgagnahöllin
Húsgagnahöllin
Húsgagnahöllin

Sölufulltrúi helgarstarf - sumarafleysing

Húsgagnahöllin var stofnuð árið 1964. Frá upphafi hefur markmið húsgagnahallarinnar verið að bjóða upp á gæðahönnun á góðu verði, frá heimsþekktum hönnunarhúsum.

Nú leitum við að reyndum og þjónustuliprum sölufulltrúa í Húsgagnahöllina á Bíldshöfða í helgarstarf. Vinnutími er annanhvern laugardag frá 11-17.

Við erum að leita að þér ef þú:

  • Ert með brennandi áhuga á húsgögnum, gjafavöru og hönnun.
  • Finnur þig vel í sölumennsku og afgreiðslustörfum.
  • Ert sterk/ur í mannlegum samskiptum og kannt að skapa jákvæða upplifun með þjónustu.
  • Ert eldri en 20 ára.
  • Vilt vinna á líflegum og skemmtilegum vinnustað.

Starfsferilskrá eru æskileg fylgigögn.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og þjónusta til viðskiptavina.
  • Byggja upp vöruþekkingu og miðla til viðskiptavina.
  • Vörumóttaka, talningar og merkingar.
  • Tiltekt, tilfærslur og aðstoð við framsetningu á vörum í verslun.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verslunarstörfum.
  • Góðir söluhæfileikar og þjónustulund.
  • Skipulagshæfileikar, nákvæmni, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Geta til að vinna undir álagi og bera ábyrgð.
  • Frumkvæði, jákvæðni og hæfni í samskiptum.
Auglýsing birt8. maí 2026
Umsóknarfrestur18. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Bíldshöfði 20, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar