

Sumarstarf í Íþróttamiðstöð: sundlaugarverðir
Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar auglýsir eftir konu í sumarafleysingar frá byrjun maí og fram í lok ágúst við íþróttamiðstöðina á Dalvík. Um er að ræða 75-100% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
· Sundlaugagæsla
· Klefavarsla
· Afgreiðsla og samskipti við viðskiptavini Íþróttamiðstöðvar
· Þrif mannvirkis
· Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
· Reynsla af þjónustustörfum er kostur
· Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur
· Gott líkamlegt atgervi og geta til að standast hæfnispróf sundstaða
· Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
· Góð íslenskukunnátta er kostur
· Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
· Hreint sakavottorð
· Viðkomandi þarf að standast hæfnispróf sundstaða.
· Lágmarksaldur er 18 ára.











