

SUMARSTARF / HLUTASTARF HJÁ ZOLO & ZOZ Í KEFLAVÍK
Langar þig að vinna í fallegu og lifandi verslunarumhverfi þar sem góð þjónusta, fallegar vörur og góð stemning skipta máli?
Við hjá ZOLO & ZOZ í Keflavík leitum að jákvæðum og ábyrgum starfsmanni í hlutastarf/sumarstarf.
Starfið felst í afgreiðslu, þjónustu við viðskiptavini, almennum verslunarstörfum og að halda versluninni snyrtilegri og fallegri.
Um er að ræða:
• Vaktir á laugardögum frá kl. 11:00 – 16:00
• Afleysingar yfir sumarfrí
• Tilfallandi aukavaktir eftir þörfum
Laun samkv kjarasamningi. Um er að ræða sumarafleysingar og hlutastarf og hentar því einstaklega vel t.d með námi.
ATH: Starfið hentar 18 ára og eldri.
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Almenn verslunarstörf
• Frágangur og uppstilling vara
• Að halda verslun snyrtilegri og fallegri
• Aðstoð við dagleg verkefni verslunar
• Jákvæðni og góð þjónustulund
• Stundvísi og áreiðanleiki
• Snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur en ekki skilyrði
• Skemmtilegt vinnuumhverfi
• Góð stemning
• Sveigjanlegt starf
• Starfsmannaafsláttur
Íslenska
Enska










