Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Laugardalslaug óskar eftir sundlaugarverði í fullt starf

Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur óskar eftir fólki til starfa í Laugardalslaug. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu. Sundlaugarnar eru tilvalinn starfsvettvangur fyrir fólk sem vill vinna í fjörugu og skemmtilegu umhverfi og hefur ánægju af því að umgangast og þjónusta viðskiptavini.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með öryggi sundlaugargesta á laugarsvæði.
  • Taka á móti gestum og veita upplýsingar um þjónustuna.
  • Leiðbeina gestum eftir því sem við á.
  • Eftirfylgni með umgengnisreglum.
  • Eftirlit með gæðum laugarvatns.
  • Umsjón með hreinlæti í og við laug, þrif ofl annað tilfallandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
    • Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
    • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
    • Umsækjendur verða að eiga gott með að umgangast fólk, hafa góða þjónustulund, vera sveigjanlegir og sýna frumkvæði. 
    • Umsækjendur þurfa að standast hæfnispróf laugarvarða sbr. reglugerð fyrir sundstaði.
    • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

    Frekari upplýsingar um starfið veitir

    Drífa Magnúsdóttir [email protected]

    Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. 

    Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameyki

Fríðindi í starfi

Heilsuræktastyrkur, sundkort og samgöngusamningur

Auglýsing birt19. júní 2026
Umsóknarfrestur9. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sundlaugavegur 30, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar