L'Occitane & SkincareLab
L'Occitane & SkincareLab

Snyrtivöruráðgjafi – L'Occitane & SKINCARELAB Smáralind

Langar þig að vinna með nokkrum af vinsælustu snyrti-, húð- og hárvörumerkjum heims?

Hjá L'Occitane & SKINCARELAB verslununum í Smáralind færð þú tækifæri til að vinna með vörumerkjum á borð við L'Occitane en Provence, Erborian, Pixi, K18, Novexpert, Xlash og PUPA Milano ásamt því að vera hluti af samheldnu teymi sem hefur brennandi áhuga á fegurð, vellíðan og framúrskarandi þjónustu.

Við leitum að metnaðarfullum og þjónustulunduðum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í að skapa einstaka upplifun fyrir viðskiptavini okkar. Ef þú hefur áhuga á snyrtivörum, húðumhirðu og hárumhirðu, býrð yfir góðri samskiptahæfni og hefur gaman af teymisvinnu gæti þetta verið starfið fyrir þig.

Starfshlutfall er 85- 90% og er vinnutími á virkum dögum breytilegur á tímabilinu frá kl. 10:30–19:00 og annan hvern laugardag. Um framtíðarstarf er að ræða.

Í versluninni starfar samhentur hópur fólks sem deilir ástríðu fyrir náttúrulegri fegurð, nútímalegri húðvörurútínu og frábærri þjónustu. Við leggjum áherslu á hlýlegt viðmót, þekkingu á vörum og sterka tengingu við viðskiptavini.

Við hvetjum öll áhugasöm – óháð kyni – til að sækja um og verða hluti af nýju og spennandi verkefni með alþjóðlegum og vaxandi vörumerkjum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að veita framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Að hjálpa viðskiptavinum að finna vörur sem henta þeirra þörfum
  • Að vinna að sölu- og þjónustumarkmiðum verslunarinnar
  • Afgreiðsla, áfyllingar og vöruframsetning
  • Að halda versluninni snyrtilegri og aðlaðandi
  • Þátttaka í kynningum og samfélagsmiðlaverkefnum
  • Að vera góður liðsfélagi og taka þátt í jákvæðu starfsumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur gaman af samskiptum við fólk og veita góða þjónustu
  • Hefur áhuga á snyrtivörum, húðumhirðu og nýjustu straumum í fegurðarheiminum
  • Er jákvæður, ábyrgur og stundvís
  • Getur unnið bæði sjálfstætt og í teymi
  • Hefur frumkvæði og metnað til að ná árangri
  • Reynsla af verslunar-, sölu- eða þjónustustörfum er kostur
  • Menntun í snyrtifræði eða förðun er kostur
  • Áhugi á samfélagsmiðlum er kostur
  • Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri og tala góða íslensku
Fríðindi í starfi
  • Afsláttur af vörum
Auglýsing birt24. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FörðunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SnyrtifræðiPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.VeiplausPathCreated with Sketch.VöruframsetningPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar