Bestseller
Bestseller
Bestseller

Aðstoðarverslunarstjóri name it

Bestseller á Íslandi auglýsir eftir aðstoðarverslunarstjóra í barnafatabúðina name it. Við leitum að aðila sem hefur brennandi áhuga á barnafatnaði og hefur metnað fyrir því að veita framúrskarandi þjónustu. Hjá Bestseller starfar gríðarlega flottur hópur af skemmtilegu og færu fólki sem elskar fötin frá vörumerkjum Bestseller. Við vinnum í góðri samvinnu og leggjum mikinn metnað í að veita frábæra og faglega þjónustu. Verslunarstjóri þarf að geta unnið vel í hóp og verið fyrirmynd fyrir starfsmenn verslunarinnar þegar kemur að þjónustu og vinnubrögðum.

Aðili þarf að búa yfir leiðtogahæfileikum og geta verið með góða umsjón með versluninni og starfsfólki hennar.

Um er að ræða hlutastarf þar sem unnið er eftir vaktaplani.

Vinnutími fer fram á opnunartíma Smáralindar og Kringlunnar.

Virka daga frá kl. 11:00-19:00 í Smáralind og 10:00-18:30 í Kringlunni, laugardaga kl. 11:00-18:00 og sunnudaga 12:00-17:00.

Aldurstakmark: 25 ára og eldri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti og stjórnun starfsmanna í verslun
  • Aðstoð við uppsetningu og ásýnd verslunar
  • Stuðningur við gerð á vaktaplönum í verslun
  • Veita viðskiptavinum frábæra þjónustu
  • Liðsinna viðskiptavinum um val á vörum
  • Áfyllingar og frágangur á vörum í verslun og lager
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af verslunar- og/eða þjónustustörfum 
  • Rík þjónustulund og sölugleði
  • Jákvæðni, metnaður og framtakssemi
  • Áhugi á tísku
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Mjög góður starfsmannaafsláttur af vörum Bestseller

 

Auglýsing birt22. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kringlan 1, 103 Reykjavík
Hagasmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar