ELKO
ELKO
ELKO

Sölufulltrúi ELKO Granda-helgarstarf

Við leitum að starfsmönnum í helgarstörf í verslun ELKO á Granda.
Starfið felur í sér sölu til viðskiptavina og hentar fólki með mikinn áhuga á tækni, þjónustu og samskiptum.
Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum.
Um helgarstarf er að ræða og unnið er laugardaga og sunnudaga, aðra hverja helgi, samkvæmt vaktaplani sem liggur fyrir mánuð fram í tímann. Vinnutími miðast almennt við afgreiðslutíma verslunar, 11-18 á laugardögum og 12-16 sunnudögum.


Hæfnikröfur:

  • 20 ára og eldri
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum og samstarfsmönnum góða aðstoð og þjónustu
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Skipulagsfærni
  • Hreint sakavottorð


ELKO leggur mikið upp úr góðri fræðslu og nýliðamóttöku fyrir sitt starfsfólk og vann ELKO menntaverðlaun atvinnulífsins árið 2024. ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.


Hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.


Fríðindi í starfi

  • Styrkur til heilsueflingar
  • Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni og N1
  • Aðgangur að velferðapakka ELKO
  • Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias


Frekari upplýsingar veitir Lilja Kristín verslunarstjóri [email protected]
Umsóknarfrestur er út 31.júlí

Auglýsing birt22. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fiskislóð 16, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar