

Aðstoðarverslunarstjóri - Múrbúðin Reykjanesi
Múrbúðin leitar að metnaðarfullum og þjónustulunduðum aðstoðarverslunarstjóra í Múrbúðina Reykjanesbæ.
Við leitum að jákvæðum einstaklingi sem hefur frumkvæði, á auðvelt með samskipti og hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum. Um er að ræða lykilhlutverk í litlu og öflugu teymi þar sem allir leggjast á eitt og enginn dagur er eins.
Sem aðstoðarverslunarstjóri verður þú staðgengill verslunarstjóra og tekur þátt í daglegum rekstri verslunarinnar, þjónustu við viðskiptavini og fjölbreyttum rekstrarverkefnum.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Daglegur rekstur verslunarinnar í samstarfi við verslunarstjóra.
- Staðganga fyrir verslunarstjóra eftir þörfum.
- Þjónusta og ráðgjöf til viðskiptavina.
- Pantanir á vörum og eftirfylgni með birgðum.
- Uppgjör og önnur rekstrartengd verkefni.
- Móttaka og framsetning vara.
- Almenn verkefni sem til falla í verslun.
Við leitum að aðila sem:
- Hefur frumkvæði og tekur ábyrgð.
- Býr yfir framúrskarandi þjónustulund og á auðvelt með samskipti.
- Er jákvæður og tilbúinn að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum.
- Vinnur vel í teymi en getur einnig unnið sjálfstætt.
- Hefur góða almenna tölvukunnáttu.
- Hefur áhuga á verslun og rekstri.
- Þekking á byggingarvörum eða reynsla úr byggingariðnaði er kostur en ekki skilyrði.
Múrbúðin hefur frá árinu 2002 boðið viðskiptavinum um allt land gæðavörur til bygginga og viðhalds á góðu verði. Við leggjum metnað í persónulega þjónustu, öflugt vöruúrval og einföld gildi sem hafa fylgt okkur frá upphafi – gott verð fyrir alla, alltaf.
Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2026.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Bjarki Pétursson ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska










