Smáraskóli
Smáraskóli
Smáraskóli

Starf í skóla og frístund Smáraskóla

Skóla- og frístundaleiðbeinendur óskast í Smáraskóla og Drekaheima sem er frístundaheimili Smáraskóla skólárið 2024 -2025.

Smáraskóli er heildstæður grunnskóli með um 500 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn er staðsettur neðst í Kópavogsdal í fallegu umhverfi nálægt íþróttamannvirkjum og fjölbreyttri og fallegri náttúru. Í skólanum er áhersla á teymiskennslu og gott samstarf nemenda og starfsmanna. Einkunnarorð skólans eru; virðing, vöxtur, viska og víðsýni.

Við Smáraskóla er rekið frístundaheimili fyrir nemendur í 1.-4. bekk og starfar það samkvæmt stefnu stefnu Kópavogsbæjar um málefni frístunda- og klúbbastarfs þar sem lögð er áhersla á að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Frístundaheimilið er opið eftir að hefðbundnum skólatíma lýkur á daginn, yfirleitt á bilinu kl. 13:30-17, auk þess að vera opið allan daginn í einhverjum tilfellum þá daga sem ekki er kennsla í skólanum.

Starfslýsing

Skóla- og frístundaleiðbeinandi annast létt þrif á húsnæði, aðstoðar nemendur í matsal, sinnir gæslu í frímínútum, og fylgir þeim í sund, íþróttir og vettvangsferðir. Skóla- og frístundaleiðbeinandi sinnir eftirliti með samskiptum nemenda á starfstíma skólans og stuðlar að jákvæðum samskiptum þeirra á milli. Skóla- og frístundaleiðbeinandi getur starfað í frístund eftir hádegi og tekur þar virkan þátt í daglegu skipulagi og framkvæmd á faglegu starfi og hefur umsjón með ákveðnum verkefnum í samstarfi við forstöðumann frístundar og skólastjóra.

Um getur verið að ræða fullt starf eða hlutastarf.

Ráðningartími og starfshlutafall:

Óskað er eftir að viðkomandi geti komið sem fyrst til starfa.

Menntunar- og hæfniskröfur:

Nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu af vinnu með börnum.

  • Reynsla og áhuga á starfi með börnum.
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Vera skipulagður, geta sýnt sjálfstæði og frumkvæði.
  • Stundvísi og áreiðanleiki skilyrði.
  • Framhaldskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi æskileg.

Fekari upplýsingar:

Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Anna Björg Ingadóttir, aðstoðarskólastjóri [email protected] eða Jónína Sveinjarnardóttir forstöðukona frístundar [email protected] í síma 4414800

Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið.

Tekið er á móti umsóknum í gegnum ráðnigarvef alfred.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Gæsla í frímínútum, vinna í matsal og möguleiki á frístundastarfi eftir 13:30

Auglýsing birt24. október 2025
Umsóknarfrestur31. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalsmári 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Stundvísi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar