Sóltún Heilsusetur
Sóltún Heilsusetur
Sóltún Heilsusetur

Sóltún Heilsusetur - Aðstoðarfólk

Sóltún Heilsusetur á Sólvangi í Hafnarfirði leitar eftir starfsfólki til starfa á nýrri 39 rýma endurhæfingardeild fyrir aldraða. Um er að ræða sólarhringsdeild þar sem fólk dvelur 4-6 vikur í senn með það að markmiði að efla virkni í daglegu lífi og efla þannig getu þeirra til sjálfstæðrar búsetu á eigin heimili.

Í starfinu felst létt aðstoð við athafnir dagslegs lífs og aðstoð við sjúkra og iðjuþjálfun.

Ef þú vilt slást í hópinn, endilega sendu okkur umsókn í gegnum Alfred.is.

Innan Sólvangs er nú þegar 71 hjúkrunarrými, 12 manna sérhæfð dagþjálfunardeild, 14 manna dagdvöl og Sóltún Heima (alhliða heimaþjónusta).

Við höfum á að skipa öflugum hópi starfsmanna, með mikinn metnað fyrir lífsgæðum og vellíðan þeirra sem hjá okkur dvelja.

Sólvangur er rekinn af Sóltúni öldrunarþjónustu ehf.

www.solvangur.is

Auglýsing birt19. júlí 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar