

Sölustjóri Áltaks
Áltak leitar að öflugum sölustjóra til starfa.
Sölustjóri ber ábyrgð á stjórn, þróun og árangri söluteymis Áltaks. Hlutverkið felst í að leiða sölustarf fyrirtækisins, styðja við dagleg verkefni söluráðgjafa, tryggja markvissa markaðstengingu og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.
Sölustjóri fylgist náið með markaði, þróun í vöruframboði og sér um að uppfæra vöruþekkingu og ferla í takt við þarfir og stefnu fyrirtækisins.
Starfið er fjölbreytt og spennandi sem reynir á sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og kraft.
Við hvetjum áhugasama að sækja um, óháð aldri, kyni og uppruna. Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
- Leiða söluteymið, styðja sölumenn í heimsóknum, eftirfylgni og verkefnum
- Skipuleggja og forgangsraða heimsóknum, söluverkefnum og söluaðgerðum
- Tryggja gæði í söluferlum, upplýsingagjöf, framsetningu og þjónustu
- Stuðla að góðri vöruþekkingu innan söluteymis og halda uppi reglulegri þjálfun
- Halda utan um lykilviðskiptavini, efla tengsl og þróa ný viðskiptatækifæri
- Greina markaðstækifæri, fylgjast með markaði og koma með tillögur að úrbótum og vöruþróun
- Tryggja að söluteymið starfi samkvæmt stefnu, ferlum og markmiðum Áltaks og Fagkaupa
- Setja markmið, fylgja eftir árangri og skila reglulegum samantektum til stjórnenda
- Taka þátt í stefnumótun, vörustefnu og kynningarstarfi
- Eiga gott samband við samstarfsdeildir, birgja og þjónustuaðila
- Vinna náið með markaðsdeild með birtingar á ljósvakamiðlum, net og samfélagsmiðlum.
- Vinna náið með vefdeild um þróun og efni á heimasíðu
- Fara fyrir uppfærslum og framsetningu í sýningarsal
- Reynsla af teymisstjórnun eða sterk leiðtogafærni
- Geta til að veita skýra, uppbyggilega og reglulega endurgjöf
- Styðja vel við teymið og hvetja til árangurs
- Menntun sem nýtist í starfi t.d. viðskiptafræði, rekstrarfræði, verkfærði, iðnmenntun
Frumkvæði og drifkraftur
- Metnaður til að ná árangri og þróa sölustarf fyrirtækisins
- Frumkvæði til að finna verkefni, bæta ferla og efla eigin þekkingu og teymsins
- Mikill drifkraftur og sterkur áhugi á markaði og viðskiptum
Skipulag og agað vinnulag
- Framúrskarandi skipulagshæfni og yfirsýn yfir verkefni, heimsóknir og söluflæði
- Agi og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Geta til að forgangsraða í hröðu og fjölbreyttu umhverfi
Samskiptahæfni og þjónustulund
- Framúrskarandi mannleg færni og hæfni til að byggja upp traust og langtímasambönd
Sterk þjónustulund og hæfni til að vinna með fjölbreyttum hópi viðskiptavina og samstarfsfólks
Markaðs- og vöruskilningur
- Þekking eða hæfni til að tileinka sér vöruflokka Áltaks (álklæðningar, kerfisloft, hljóðvist, mótalausnir o.fl.)
- Skilningur á markaði og tækifærum
- Greiningarhæfni og færni í að sjá og þróa ný viðskiptatækifæri
- Stuðla að og innleiða nýjar vörur og lausnir/vöruþróun
Lausnamiðuð nálgun
- Hæfni til að greina þarfir viðskiptavina og koma með skýrar og faglegar lausnir
- Útsjónarsemi og hugmyndaauðgi
Tæknifærni
- Gott vald á tölvukerfum og daglegum vinnuforritum
- Þekking á AutoCAD, CRM og BC er kostur en ekki skilyrði
- Atvinna hjá sterku og vaxandi fyrirtæki innan byggingariðnaðar
- Mjög fjölbreytt verkefni og tækifæri til að þróast áfram sem sérfræðingur
- Samkeppnishæf laun og góð starfskjör
Að auki bjóðum við góðan starfsanda, góð teymi og tækifæri til vaxtar. Líkamsræktarstyrkur, niðurgreiddur hádegismatur og öflugt starfsmannafélag.
Enska
Íslenska










