
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Sölumaður á landbúnaðarsviði
Lífland leitar að öflugum og framsæknum einstaklingi til þess að sinna starfi sölumanns á landbúnaðarsviði. Um er að ræða spennandi starf sem felur í sér sölu og ráðgjöf til viðskiptavina viðsvegar um landið . Starfið felur í sér ferðalög á vinnustöð viðskiptavina. Um er að ræða fullt starf.
Ef þú brennur fyrir sölu og hefur mikinn áhuga og metnað til að veita framúrskarandi þjónustu, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heimsóknir til viðskiptavina
- Sókn nýrra viðskiptavina
- Viðskiptastjórnun
- Viðskiptastjórnun og öflun nýrra viðskipta
- Greining viðskiptatækifæra
- Móttaka pantana
- Undirbúningur og eftirfylgni söluferða
- Þátttaka í gerð markaðs- og söluáætlana
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starf
- Reynsla eða mikill áhugi af sölustörfum
- Söluhæfileikar og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta (Excel)
Auglýsing birt15. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Brúarvogur 1-3 1R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSjálfstæð vinnubrögðSölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Starfsfólk óskast/Seeking employees
S4S Premium Outlet

Síminn leitar að öflugu sölufólki!
Síminn

Hvolsvöllur: Sumarstarf í timbursölu með möguleika á framtiðarstarfi
Húsasmiðjan

Hvolsvöllur: Söluráðgjafi í framtíðar – og sumarstörf
Húsasmiðjan

Starfsmaður á lager og í verslun
Tekk

Sölu- og þjónusturáðgjafi - fullt starf - Flügger Akureyri 🎨
Flügger Litir

Sumarstarf í verslun - Borganes
Lífland ehf.

Söluráðgjafi í ELKO Granda - hlutastarf
ELKO

Ferðaráðgjafi og Viðskiptaþróun í Hópadeild
Kilroy

Áfyllingar og framsetning á vörum
Retail Support Ísland ehf.

Við leitum af ráðgjöfum.
Tryggingar og ráðgjöf ehf.