
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Sumarstarf í verslun - Borganes
Lífland óskar eftir eftir jákvæðum og söludrifnum sumarstarfsmanni í verslun Líflands í Borgarnesi með möguleika á áframhaldandi hlutastarfi í vetur.
Vinnutími er frá kl. 9 – 17 virka daga og frá kl. 10 – 14 annan hvern laugardag.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf og sala til viðskiptavina
- Áfyllingar í verslun
- Frágangur á lager
- Almenn verslunarstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Lyftararéttindi eru kostur
- Þekking á íslenskum landbúnaði og hestamennsku er kostur
- Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvuþekking
Auglýsing birt15. apríl 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Digranesgata 6, 310 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Lyfja Ísafirði - þjónusta og ráðgjöf - sumarstarf
Lyfja

Sumarstörf í Hvammsvík / Summer jobs at Hvammsvík
Hvammsvík Sjóböð ehf

KFC í borginni 🍗
KFC

Söluráðgjafi í ELKO Granda - hlutastarf
ELKO

Newrest - Framleiðsla
NEWREST ICELAND ehf.

Ert þú að leita að skemmtilegu starfi á líflegum vinnustað?
Ísey Skyr Bar

Ferðaráðgjafi og Viðskiptaþróun í Hópadeild
Kilroy

Sölufulltrúi í Blómval á Akureyri
Blómaval

Birgðavörður - sumarafleysing
HS Veitur hf

Afgreiðslustarf
Bæjarbakarí

Bókavörður á Djúpavogi
Bókasafn Múlaþings

Áfyllingar og framsetning á vörum
Retail Support Ísland ehf.