
Lífland ehf.
Lífland ræktar lýð og land. Þjónusta okkar sýnir ræktarsemi við grunnstoðir mannlífs um allt land. Með fjölbreyttu vöruúrvali og vísindalegum vinnubrögðum sköpum við góðan jarðveg fyrir hverskonar rækt; jarðrækt, búfjárrækt, nautgriparækt og hrossarækt.
Þungamiðjan í starfi okkar er þó ekki síst mannrækt í víðustu merkingu þess orðs. Íslendingar hafa sterka þörf fyrir að komast í snertingu við uppruna sinn og náttúru landsins.
Það gildir einu hver klæðist stígvélunum - stoltur bóndi, frískleg hestakona eða fjölskyldufaðir í sumarhúsi - þau vita hvar þau standa. Lífland gefur þeim þessa jarðtengingu.
Lífland er markaðsdrifið þjónustufyrirtæki sem leggur áherslu á að uppfylla þarfir og óskir viðskiptavina. Starfsemi fyrirtækisins lýtur annars vegar að þjónustu tengdri landbúnaði og tengist hins vegar hestaíþróttum, dýrahaldi, útivist og þjónustu við matvælaiðnaðinn.
Hlutverk Líflands er að bæta árangur viðskiptavina sinna. Við viljum sjá fyrir breytingar á þörfum okkar viðskiptavina og bjóða áhugaverðustu lausnirnar fyrir þá á hverjum tíma fyrir sig.
Lífland rekur tvær verksmiðjur, annars vegar fóðurverksmiðju á Grundartanga og hins vegar kornmyllu í Korngörðum í Reykjavík ásamt því að reka Nesbúegg. Skrifstofur og lager eru staðsett í Brúarvogi, Reykjavík. Verslanir Líflands eru á Lynghálsi, Reykjavík, Borgarbraut Borgarnesi, Grímseyjargötu Akureyri, Ormsvöllum Hvolsvelli, Efstubraut Blönduósi og Austurvegi Selfossi.

Aðstoðarverslunarstjóri á Akureyri
Lífland óskar eftir að ráða aðstoðarverslunarstjóra í verslun á Akureyri. Um er að ræða 100% starf og vinnutíminn er 9:00 -17:00. Viðkomandi fær góða þjálfun í öðrum verslunum Líflands og í Reykjavík.
Kostur ef viðkomandi geti hafið störfum sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Taka þátt í daglegum rekstri verslunar
- Aðstoða verslunarstjóra með mannaforráð, ráðningar og daglega starfsmannastjórnun
- Stuðla að jákvæðri liðsheild og góðu starfsumhverfi
- Sala og afgreiðsla til viðskiptavina
- Framstillingar og útlit verslunar
- Áfyllingar, birgðahald, innkaup og sala
- Önnur tilfallandi verkefni tengd rekstri verslunar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af svipuðu starfi skylirði
- Góð tölvuþekking og þekking á Business Central er kostur
- Þekking á hestavörum og landbúnaði kostur
- Rík hæfni til samstarfs og samskipta
- Skipulagshæfni og frumkvæði
- Leiðtogahæfileikar og geta til að hvetja aðra
- Sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð
- Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
Auglýsing birt27. mars 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Grímseyjagata 2, Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Þjónustufulltrúi / Car Rental Agent
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Sumarstarf N1 verslun Akureyri
N1

Newrest – Catering Delivery
NEWREST ICELAND ehf.

Reikningagerð og móttaka - Verkstæði Vélrásar
Vélrás

Red Bull Musketeer - Sölufulltrúi Red Bull til veitingahúsa
Red Bull / Steindal Heildverslun

Afgreiðslustarfsmaður í Lyfjaval Hæðasmára
Lyfjaval

Verslunarstjóri
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Vaktstjóri í verslun
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Samlokumeistari Subway
Subway

Vaktstjóri/Shift Manager
LiBRARY bistro/bar

Icewear Húsavík Sumarstörf - Sölufulltrúar
ICEWEAR

Hlutastarf - Dýrabær í Kringlunni
Dyrabær