

Sölu-/Þjónustufulltrúi Kerfi Fyrirtækjaþjónusta
Sölufulltrúi / Þjónustufulltrúi
Kerfi fyrirtækjaþjónusta er öflugt fyrirtæki í Hafnarfirði sem sérhæfir sig í leigu á vatns- og kaffivélum ásamt sölu á kaffi, vatni og öðrum vörum á kaffistofuna fyrir stofnanir og fyrirtæki. Kerfi hefur hlotið viðurkenningu sem Framúrskarandi Fyrirtæki 2021, 2022, 2023 og 2024 hjá Creditinfo.
Fyrirtækið vill nú ráða öflugan starfsmann í starf sölu-/þjónustufulltrúa.
Starfið felur í sér þjónustu við kaffi- og vatnsvélar, afgreiðslu til viðskiptavina, tiltektir á pöntunum og önnur viðeigandi störf. Talsverð samskipti við viðskiptavini. Umsækjandi þarf að geta lyft 20kg vatnsbrúsa.
Viðkomandi þarf að hafa grunnskólamenntun og bílpróf á beinskiptan bíl. Reynsla af þjónustustörfum æskileg.
Snyrtimennska, kurteisi og hæfni í mannlegum samskiptum áskilin.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt með miklum samskiptum við viðskiptavini. Við leggjum mikið upp úr glaðlegu andrúmslofti í vinnunni, frumkvæði og þjónustulund.
Um fullt starf (100%) er að ræða og er vinnutíminn frá kl. 8-16:30 alla virka daga nema föstudaga til 15:45. Ekki sumarstarf.
Áhugasamir sendi umsókn á netfangið [email protected] eða hafi samband við Sigurð í síma 564-1400
- Þjónusta við viðskiptavini. Útkeyrsla á vörum og sala. Þjónusta við kaffi- og vatnsvélar.
- Bílpróf og grunnskólamenntun













