
Félagsstofnun stúdenta
Félagsstofnun stúdenta er sjálfseignarstofnun með sjálfstæðri fjárhagsábyrgð. FS var stofnuð með lögum nr. 33, 1968 og tók formlega til starfa 1. júní sama ár. Aðild að stofnuninni eiga allir skrásettir stúdentar við Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið.
FS er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki fyrir stúdenta við Háskóla Íslands og er aðalmarkmið að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum kjörum og auka lífsgæði stúdenta. Gildi FS eru: Góð þjónusta – Virk samvinna – Jákvæð upplifun – Markviss árangur.
Í dag rekur FS: Bóksölu stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentakjallarann, Hámu, Hámu Salatbar, Bókakaffi stúdenta og Kaupfélag stúdenta. Samanlagður starfsmannafjöldi er um 150.

Smiður
Stúdentagarðar óska eftir að ráða smið til starfa. Smiður sinnir almennu viðhaldi á Stúdentagörðum og öðrum einingum Félagsstofnunar stúdenta, svo sem leikskólum og veitingasölu eftir þörfum. Smiður annast jafnframt nýsmíði og sér um innkaup á efni eftir þörfum.
Smiður tekur á móti stúdentum með hlýlegu viðmóti og veitir framúrskarandi þjónustu.
Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinnir almennu viðhaldi á Stúdentagörðum og öðrum einingum Félagsstofnunar stúdenta (FS)
- Sinnir nýsmíði á Stúdentagörðum og innan Félagsstofnunar stúdenta (FS)
- Hefur umsjón með tækjum og verkfærum í sinni vörslu
- Sér um þrif og viðhald á verkstæði
- Viðheldur góðri umgengni um sendibíl og sér um þrif eftir notkun
- Sinnir öðrum tilfallandi störfum eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun nauðsynleg
- Hreint sakavottorð
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
- Þjónustulyndi
- Lausnamiðað og jákvætt viðhorf
- Góð samskiptahæfni
- Snyrtimennska
- Samviskusemi
- Skipulagshæfni
- Góð íslenskukunnátta og enskukunnátta er skilyrði
- Almenn tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
Starfsfólk FS nýtur ýmissa fríðinda. Þar má meðal annars nefna íþróttastyrk og afslátt í Bóksölu stúdenta, Stúdentakjallaranum og í Hámu.
FS er með öflugt starfsmannafélag sem sér meðal annars um að skipuleggja árshátíðarferðir erlendis annað hvert ár.
Auglýsing birt23. júní 2026
Umsóknarfrestur7. júlí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Eggertsgata 6, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
SmíðarÚtkeyrsla
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Húsumsjón - framtíðarstarf hjá leiðandi þjónustufyrirtæki
Eignaumsjón hf

Bifvélavirki/vélvirki
Terra hf.

Bifvélavirki - Keflavík
Hertz Bílaleiga

Umsjónarmaður fasteigna- og lauga
Vök Baths

Dekkja- og smurþjónusta í Keflavík
Hertz Bílaleiga

Húsasmiður - iðnaðarmaður með reynslu
ÞÁ smíðar ehf

Vélamaður/Machine operator
Nicopods ehf

Verkamaður/Worker
Jarðtækni

Smiður óskast til starfa hjá Timburás
Timburás ehf

Verkstjóri á byggingarstað
TILDRA Byggingafélag ehf.

Verkefnastjóri Byggingarframkvæmda
E. Sigurðsson

Starfsmaður á þjónustustöðinni á Hólmavík
Vegagerðin