
Eignaumsjón hf
Eignaumsjón hf. er umsvifamesta fyrirtæki landsins í þjónustu við húsfélög og rekstrarfélög fasteigna og brautryðjandi í þessari þjónustu hér á landi. Fyrirtækið var stofnað haustið 2000 og býr yfir víðtækri reynslu og þekkingu í rekstri fjöleignarhúsa, bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis.
Gildi Eignaumsjónar eru framsækni, öryggi og fagmennska og markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu þar sem áhersla er lögð á hlutlausa nálgun, öryggi, gæðamál og skýra verkferla.
Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og góðan starfsanda. Hjá okkur starfa nú um 50 einstaklingar, öflugur hópur fólks með fjölbreyttan bakgrunn og menntun. Við leggjum mikið upp úr teymavinnu og góðum anda á vinnustaðnum, jákvæðum samskiptum og umhverfi sem öllum líði vel í. Vinnan er bæði krefjandi og skemmtileg og liðsheildin góð, sem skilar sér í árangri og líflegu vinnuumhverfi þar sem áhersla er lögð á samvinnu og fagmennsku. Eignaumsjón leggur áherslu á að skapa starfsfólki tækifæri til að þróast í starfi og takast á við krefjandi verkefni sem efla það og styrkja. Við leggjum okkur fram við að allir njóti jafnra tækifæra á vinnustaðnum og metum allt starfsfólk að verðleikum.

Húsumsjón - framtíðarstarf hjá leiðandi þjónustufyrirtæki
Eignaumsjón hf. leitar að öflugum og þjónustumiðuðum einstaklingi til starfa við Húsumsjón.
Um er að ræða fjölbreytt og lifandi starf fyrir laghentan aðila sem hefur áhuga á að bæta umhverfi fasteigna, sjá tækifæri til umbóta og veita framúrskarandi þjónustu.
Um Húsumsjón
Húsumsjón er sérhæfð þjónusta fyrir hús- og rekstrarfélög sem tryggir markvissa umsjón með sameign fasteigna. Þjónustan stuðlar að lægri viðhaldskostnaði, auknu öryggi og bættri ásýnd fasteigna til lengri tíma.
Við leitum að einstaklingi sem
- Er laghentur, iðnmenntun er mikill kostur
- Hefur umbótahugsun og sér tækifæri til að gera betur
- Er þjónustulundaður og á auðvelt með samskipti
- Sýnir frumkvæði og ber ábyrgð á eigin verkefnum
- Hefur góða almenna tölvufærni og er tilbúinn að tileinka sér ný kerfi
- Er skipulagður og vinnur vel sjálfstætt sem og í hóp
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og eftirlit með sameign fasteigna
- Létt viðhald og almenn umhirða
- Eftirlit með verktökum og öðrum þjónustuaðilum
- Samskipti við eigendur og íbúa
- Skráning og skýrslugerð
- Greining á tækifærum til úrbóta
Menntunar- og hæfniskröfur
- Æskileg er reynsla úr starfi sem tengist viðhaldi eða iðnaði
- Góð íslenskukunnátta í tali og riti
- Gild ökuréttindi
- Reglusemi og áreiðanleiki
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Mötuneyti
- íþróttastyrkur
- Öflug skemmtinefnd og góður starfsandi
Auglýsing birt23. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaValkvætt
Staðsetning
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Smiður
Félagsstofnun stúdenta

Tengdu þig við okkur - rafvirki á Akureyri
Rarik ohf.

Umsjónarmaður fasteigna- og lauga
Vök Baths

Óskað er eftir málara í fullt starf.
Gæðalitir ehf.

Rafvirki í nýsköpunarverkefni
Alor ehf.

Smiður óskast til starfa hjá Timburás
Timburás ehf

Ert þú rafvirki ?
Kaplar ehf

Vélvirki/vélstjóri
Vélvirki ehf.

Ó.K.RAF leitar að rafvirkja
Ó.K.RAF ehf.

Umsjónarmaður fasteigna, öryggismála og viðgerða
Þjóðminjasafn Íslands

Húsgagnasmiður óskast
RE smiðir ehf.

Kennari í hönnun og smíði!
Salaskóli