Skurðhjúkrunarfræðingar / Hjúkrunarfræðingar á skurðstofur í Fossvogi
Við leitum eftir skurðhjúkrunarfræðingum til starfa á skurðstofur í Fossvogi. Einnig kemur til greina að ráða inn hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á að sækja sér viðbótarmenntun í skurðhjúkrun. Í boði eru áhugaverð störf með góðu samstarfsfólki þar sem unnið er á þrískiptum vöktum auk bakvakta samkvæmt vaktskipulagi deildar eftir að þjálfun lýkur. Störfin eru laus 1. júní 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Á deildinni eru 8 skurðstofur sem þjóna 5 sérgreinum og árlega eru framkvæmdar þar um 6000 aðgerðir. Á deildinni starfa um 90 einstaklingar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sótthreinsitæknar, skrifstofufólk og sérhæfðt starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, sem unnin eru í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar, öryggi sjúklinga og teymisvinna eru höfð í fyrirrúmi. Í boði er einstaklingsaðlöguð þjálfun eftir þörfum hvers og eins á skemmtilegum vinnustað.