Matarkompani
Matarkompani

Skrifstofu Snillingur!

Við leitum að skipulögðum og þjónustulunduðum skrifstofusnilling til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast daglegum rekstri fyrirtækisins. Starfið felur í sér samskipti við viðskiptavini, utanumhald með pöntunum, bókunum og skipulagningu ásamt öðrum verkefnum sem stuðla að því að reksturinn gangi hnökralaust fyrir sig.

Viðkomandi þarf að hafa gaman af samskiptum, vera sjálfstæður í vinnubrögðum, lausnamiðaður og hafa góða skipulagshæfileika.

Fyrirtækið er á spennandi vaxtarferð og því fylgja góð tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling til að taka að sér aukna ábyrgð, þróast í starfi og vaxa með fyrirtækinu til framtíðar.

Vinsamlegast smellið "hér" til að svara fleiri spurningum og klára að sækja um

Helstu verkefni og ábyrgð

Svara tölvupóstum og símtölum
Almenn samskipti og þjónusta við viðskiptavini
Bókanir og utanumhald fyrir veislur og viðburði
Yfirsýn og utanumhald með hádegismatspöntunum í gegnum okkar kerfi
Skipulagning starfsfólks fyrir veislur og viðburði
Samskipti og skipulag með verktökum og matreiðslumönnum
Önnur tilfallandi verkefni sem kunna að koma upp í daglegum rekstri

Menntunar- og hæfniskröfur

Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Góð almenn tölvukunnátta
Reynsla af þjónustu- eða skrifstofustörfum er kostur
Góð skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
Áhugi á að læra ný kerfi og nýta tæknilausnir til að einfalda vinnu

Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur30. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.VaktaskipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Viðburðastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar