

Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma
Sjúkraliðar óskast til starfa með okkur á legudeild geðrofssjúkdóma við Hringbraut. Við sækjumst eftir metnaðarfullum sjúkraliðum sem hafa áhuga á að starfa með fólki með geðrænar áskoranir, bæði í bráðaveikindum og endurhæfingu. Starfið hentar vel þeim sem brenna fyrir samskipti, virkni, öryggi og fjölbreytta vinnu. Áhersla er lögð á framúrskarandi notendamiðaða þjónustu og góðan starfsanda. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 11. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.
Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu, lyfjameðferð og mikil áhersla er lögð á fjölskylduvinnu. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm. Starfið er mjög fjölbreytt og getur falið í sér líkamlega umönnun, hvatningu við athafnir daglegs lífs, virkniþjálfun og að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks á deild. Spennandi vettvangur fyrir sjúkraliða sem hafa áhuga á að dýpka þekkingu sína í geðhjúkrun.
Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Boðið er upp á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning í starfi. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.



























































