

Hjúkrunarnemar á 3.-4. ári með áhuga á geðhjúkrun - spennandi tækifæri á legudeild geðrofssjúkdóma
Ertu hjúkrunarnemi, hefur áhuga geðhjúkrun og að starfa í umhverfi þar sem lögð er áhersla á starfsþróun, fagmennsku, samvinnu og góðan starfsanda?
Við leitum eftir áhugasömum 3.-4. árs hjúkrunarnemum sem vilja efla sig á sviði geðhjúkrunar. Starfsumhverfi deildarinnar er spennandi, krefjandi, umbótamiðað og skemmtilegt. Fjölmörg tækifæri eru til faglegrar þróunar. Það eru spennandi tímar í geðhjúkrun og mikil áhersla er á eflingu hjúkrunar í þjónustunni. Boðið er upp á einstaklingsmiðaða og góða aðlögun í starfi. Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi og tekið er tillit til námsins við skipulag vakta.
Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu, lyfjameðferð og mikil áhersla er lögð á fjölskylduhjúkrun. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm.



























































