
Dalskóli
Dalskóli
Úlfarsbraut 118-120 - 113 Reykjavík
www.dalskoli.is | [email protected]
Sími: 411 7860
Farsími: 664 8370

Sérkennari í Dalskóla, grunnskólahluta
Dalskóli grunnskólahluti auglýsir eftir sérkennara á yngsta stig skólans. Staðan er laus næsta haust.
Dalskóli er samrekinn grunnskóli og frístundaheimili. Í skólanum eru rúmlega 500 börn á grunnskólaaldri frá 1.bekk - 10.bekk.
Skólinn er staðsettur í Úlfarsárdal í nýrri og glæsilegri byggingu neðst í dalnum.
Lögð er áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Lögð er áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Skólinn starfar eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga og er þróunarskóli í leiðsagnarnámi.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem allra fyrst. Við hvetjum þó alla áhugasama sérkennara að sækja um starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna með börnum sem þurfa stuðning
- Leiðsögn og stuðningur til starfmanna
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna að einstaklingsnámskrá og fylgja henni eftir
- Sinna verkefnum sem tengjast verkefnum innan skólans sem yfirmaður felur honum.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Sérkennaramenntun eða önnur sambærileg menntun
- Menntun og hæfni til almennrar kennslu með fjölbreyttar þarfir nemendahóps.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Menningarkort- bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- Heilsuræktarstyrkur
Auglýsing birt21. mars 2026
Umsóknarfrestur3. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Úlfarsbraut 122-124, 113 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sérkennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Sérkennslustjóri - tímabundið starf
Leikskólinn Furuskógur

Stuðningsfulltrúi óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika
Leikskólinn Nóaborg

Sérkennari og eða kennari í íslensku sem annað tungumál í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Stærðfræðikennari í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli

Sérkennari óskast til starfa í Árbæjarskóla
Árbæjarskóli

Sérkennslustjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir (tímabundin ráðning)
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari við Eskifjarðarskóla
Eskifjarðaskóli

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Sérkennsla/stuðningur
Leikskólinn Hraunborg

Kennari á yngsta- og miðstigi í Árbæjarskóla frá hausti 2026
Árbæjarskóli