

Sérkennslustjóri - tímabundið starf
Leikskólinn Furuskógur óskar eftir metnaðarfullum og öflugum sérkennslustjóra sem brennur fyrir að efla nám, vellíðan og farsæld allra barna.
Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár, með möguleika á framhaldi.
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum einstaklingi til að sinna starfi sérkennslustjóra. Í starfinu felst að leiða og þróa sérkennslu, styðja við kennara og tryggja faglegt samstarf við foreldra og fagaðila.
Leikskólinn Furuskógur er starfræktur í tveimur húsum í Fossvoginum og liggur vel við samgöngum.
Einkunnarorð skólans eru Gleði, Vinsemd og Virðing, og er áhersla lögð á lýðræði, sköpun, útinám og lífsleikni í starfi með börnunum. Skólinn hlaut Regnbogavottun í apríl 2022.
Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Óskað er eftir einstaklingi með menntun og reynslu sem nýtist í starfi.
- Er faglegur umsjónarmaður sérkennslu í skólanum, annast frumgreiningu og ráðgjöf til starfsmanna.
- Ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir þau börn sem njóta sérkennslu og hefur yfirumsjón með gerð verkefna fyrir þau.
- Stýrir teymisvinnu vegna barna sem njóta sérkennslu og heldur utan um mál þeirra.
- Veitir foreldrum og starfsfólki stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
Unnið er í nánu samstarfi við stjórnendur, kennara og ýmsa sérfræðinga.
- Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfamenntun eða önnur sambærileg menntun
- Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg
- Reynsla af leikskólastarfi
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Góð tölvukunnátta
- Frumkvæði og sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum er skilyrði
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsfólks og afsláttur af leikskólagjöldum
- Stytting vinnuvikunnar - 36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
- Frítt fæði á vinnutíma, grænmetis- og veganfæði í boði
- Samgöngustyrkur
- Menningarkort sem veitir aðgang aðsöfnum borgarinnar og ókeypis bókasafnskort
- Heilsuræktarstyrkur og frítt í sundlaugar Reykjavíkur
Íslenska










