
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú tæplega 12.000 íbúa. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1000 og lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri, þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Leikskólaráðgjafi til skólaþjónustu
Skólaþjónusta Árborgar auglýsir stöðu leikskólaráðgjafa til að ganga til liðs samheldinn og þverfaglegan hóp starfsfólks. Skólaþjónustan er hluti af fjölskyldusviði Árborgar þar sem mikil áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf skóla-, velferðar- og frístundaþjónustu.
Skólaþjónustan sinnir margþættum verkefnum með það að leiðarljósi að mæta fjölbreyttum þörfum barna, foreldra og starfsfólks skóla og frístundar. Mikil áhersla er lögð á snemmtækan stuðning, lausnaleit, þróun úrræða, öfluga skólaþróun, fræðslu og námskeið bæði fyrir börn, foreldra og starfsfólk skóla og frístundar.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 12000 íbúar þar af um 2300 börn í leik- og grunnskólum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- ráðgjöf til starfsfólks og stjórnenda leikskóla m.a. varðandi kennslu, hegðun og líðan barna og starfstengda leiðsögn
- ráðgjöf varðandi starfsþróun og starfshætti í leikskólum
- eftirfylgd og mat á stuðningsþörf barna eftir greiningar eða skimanir
- þverfaglegt samstarf um málefni barna í leikskólum
- fræðsla og námskeið fyrir foreldra og starfsfólk leikskóla
- daggæslumál, m.a. eftirlit með dagforeldrum, umsjón með niðurgreiðslu daggæslu og fræðsla þegar við á.
- þátttaka í daggæsluteymi
- þverfaglegt samstarf á fjölskyldusviði
Menntunar- og hæfniskröfur
- háskólapróf í leikskólakennarafræðum er skilyrði
- framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg
- reynsla af starfi úr leikskólum er skilyrði
- reynsla af leikskólaráðgjöf er æskileg
- reynsla af teymisvinnu og þverfaglegu samstarf er æskileg
- lipurð og góð færni í mannlegum samskiptum
- frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og góð skipulagshæfni
- góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði
Fríðindi í starfi
Sveigjanlegur vinnutími, full vinnustytting, góður starfsandi, handleiðsla
Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Heimilisfræðikennari fyrir næsta skólaár - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Sumarstörf á leikskólum Hafnarfjarðarbæjar
Hafnarfjarðarbær

Kjarnastýra/deildarstjóri - leikskólakennari
Leikskólinn Gimli

Leikskólakennari /leikskólaliði óskast í leikskólann Hlíð
Leikskólinn Hlíð

Sérkennslustjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir (tímabundin ráðning)
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri í leikskóla
Leirvogstunguskóli

Leikskólakennari
Leikskólinn Tjarnarskógur

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Umsjónarkennari á miðstigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli