

Sérfræðingur í upplýsingatækni
Coca-Cola á Íslandi leitar að drífandi, sjálfstæðum og skipulögðum einstaklingi til að stýra verkefnum og umbótum tengdum upplýsingatækni. Viðkomandi verður lykilaðili í innleiðingu, notkun og eftirfylgni tæknilausna hjá CCEP á íslandi. Ef þú hefur brennandi áhuga á tæknilausnum og gott auga fyrir þróun og umbótum gæti þetta verið tækifæri fyrir þig.
Starfið tilheyrir teymi BPT (Business Process & Technology) hjá CCEP og heyrir undir framkvæmdastjóra BPT í Noregi.
- Verkefnastýra tæknitengdum verkefnum og styðja við stöðugar umbætur í upplýsingatækni CCEP á Íslandi
- Tryggja að tæknilausnir CCEP á íslandi séu samræmdar, skilvirkar fyrir Íslenska markaðinn og styðji við stefnu CCEP
- Veita ráðgjöf, leiðsögn og fræðslu um starfrænar lausnir, þjónustu og nýjungar
- Dagleg aðstoð við notendur og lausn tæknilegra áskorana
- Tryggja að íslenska starfsemin nýti til fulls þá stafrænu möguleika sem í boði eru (MSD365, RED1, OC Engine, MS Copilot, MS Office)
- Ofurnotandi af Dynamics 365 Finance and Operations
- Efla framúrskarandi vitund og hegðun í netöryggismálum
- Háskólapróf í upplýsingatækni, tölvunarfræði eða sambærilegt
- Reynsla af verkefnastjórnun og eða breytingastjórnun
- Framúrskarandi tölvuþekking, þekking á ferlum og tæknilausnum og hæfni til að tileinka sér nýjungar
- Þekking eða reynsla af MSD365 og Salesforce mikill kostur
- Fagleg vinnubrögð og rík þjónustulund
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf
- Góð töluð og rituð íslensku- og enskukunnátta
Coca-Cola er meðal stærstu og þekktustu alþjóðlegu vörumerkja í heiminum og er neytt daglega af milljörðum fólks um allan heim. Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með yfir 80 ára sögu í íslensku samfélagi.
Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti og vellíðan starfsfólks.
Öll sem uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf.
Íslenska
Enska



