Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Sérfræðingur í styrktarsjóðum

Dómsmálaráðuneytið leitar að sérfræðingi til að starfa í verkefnastýringu og umsýslu sjóða tengdum Schengen - samstarfinu á skrifstofu fjármála. Skrifstofan fer með málefni er varða fjármálaáætlun, rekstur og fjármál ráðuneytisins, húsnæðismál, stafræn verkefni og málefni landamærasjóðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst stefnumótun, verkefnastjórnun, uppgjör á verkefnum og undirbúningur ákvarðana er varða málefni styrktarsjóðs Evrópusambandsins um stjórnun landamæra og útgáfu áritana (Border Management and Visa Instrument). Jafnframt felur starfið í sér samskipti, upplýsingagjöf og eftirfylgni varðandi umsóknir ásamt yfirferð á tölulegum gögnum og framvinduskýrslum. Sérfræðingur ber að auki ábyrgð á vefsíðu sjóðins, birtingu og uppfærslu efnis. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. 
  • Reynsla og þekking af verkefnastjórnun og stefnumótun er kostur. 
  • Reynsla og þekking af yfirferð og úrvinnslu  styrkumsókna er kostur. 
  • Reynsla og þekking af greiningu fjárhagslegra gagna er kostur. 
  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og metnaður til að ná árangri í starfi.  
  • Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.  
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt25. júní 2026
Umsóknarfrestur29. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skúlagata 4, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar