
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðherra er Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og fer með yfirstjórn ráðuneytisins ásamt því að bera ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum þess. Allar embættisfærslur starfsfólks eru gerðar í umboði ráðherra.
Hjá ráðuneytinu starfa um 70 manns og eru flestir með lögfræðimenntun. Undir starfsemi ráðuneytisins heyra um 47 stofnanir sem ná til þriggja málefnasviða samkvæmt lögum um opinber fjármál og snerta fjölmörg svið þjóðfélagsins. Meðal þeirra stofnana sem heyra undir ráðuneytið eru lögregluembætti, sýslumenn, Fangelsismálastofnun, Persónuvernd og fleiri.
Skipurit ráðuneytisins skiptist niður á sjö skrifstofur sem eru skrifstofa yfirstjórnar, skrifstofa alþjóðmála, skrifstofa réttinda einstaklinga, skrifstofa jafnréttismála, skrifstofa löggjafarmála, skrifstofa löggæslumála og skrifstofu fjármála sem starfar þvert á allar einingar.

Laust embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála
Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála. Nefndarmenn eru sérfróðir um mál sem falla undir útlendingalög einkum hvað varðar dvöl og búsetu útlendinga hér á landi, málefni flóttamanna og rétt til alþjóðlegrar verndar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Varaformaður er staðgengill formanns og sinnir ásamt honum innra starfi nefndarinnar svo sem gerð verklagsreglna, undirbúningi úrskurða nefndarinnar og þróun starfseminnar í þágu gæða og skilvirkni. Að jafnaði úrskurða tveir nefndarmenn í málum sem berast kærunefnd, sbr. 8. gr. laga um útlendinga.
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga um dómstóla nr. 50/2016 auk eftirfarandi hæfniskrafna:
- Þekking og reynsla á sviði stjórnsýsluréttar.
- Þekking og reynsla af vinnslu úrskurða innan stjórnsýslunnar.
- Þekking á málefnum útlendinga kostur.
- Rík samskipta- og samstarfshæfni, ásamt hæfni til að leiða faglegt samstarf við ólíka hagaðila.
- Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
- Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Auglýsing birt24. júní 2026
Umsóknarfrestur3. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skúlagata 17, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)



